Fólskulegheit

Maður verður satt að segja orðlaus yfir svona fólsku. Ég skora á þessa ungu konu að kæra þetta eins og skot ,um leið sendi ég henni mínar bestu óskir um góðan bata
mbl.is Fjölskyldan er í sjokki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÞJÓÐSTJÓRN

Kannski er nú komið að því að lengra verður ekki haldið með þessa flokka okkar einfaldlega vegna þess að þeir eru ekki samstíga í stjórnarviðræðum og þá vaknar spurningin : Er ekki komið að því að skipa þjóðstjórn sem hefur það að markmiði að koma okkur út úr þessum ósköpum. Það hlýtur að vera megin markmiðið að taka á efnahagsmálunum með þeim hætti að bjarga því sem bjargað verður. Við erum að falla á tíma og höfum ekki lengri tíma í þras og bjánagang.Ef ekkert gerist á næstu dögum og vikum þá er voðinn vís og allt getur hæglega hrunið eins og spilaborg. Eru þessir tveir flokkar þess umkomnir að leiða okkur út úr vandanum? Ég held ekki því miður
mbl.is Fundar með forseta síðdegis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er þá stjórnin sprungin

Stjórnendur þáttarins stóðu sig illa í því að fá rækileg svör frá vg og samf. varðandi áframhaldið. Af hverju voru þeir ekki þaulspurðir um ágreininginn varðandi esb? Björgvin reyndar nánast útilokaði áframhaldandi samstarf. Þetta verður að fá á hreint fyrir kostn. refjalaust
mbl.is Evrópustefnan verði á hreinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki komið nóg í bili

Mér sýnist að það sé orðið lítið gagn í þessu þingi lengur,endalaust málþóf  svo ekki sé talað um

gaulið í Árna Joh. Er ekki best að segja þetta gott í bili og losa þjóðina við svona lítilsvirðingu að hlusta á þennan málflutning og vona að komandi þing verði málefnanlegra. Manni satt að segja ofbýður svona framkoma sumra þingmanna ,sama í hvaða flokki þeir eru


mbl.is Rætt um fundastjórn þingsins í klukkustund
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landsfundur sjálfstæðismanna

Davíð hékk á golgata

Njörvaður við krosinn

eins og gömul hljómplata

sagði,ann: Ég er bossinn


Vanrækslugjald á bíleigendur

Frá og með morgundeginum verður lagt 15.000 kr gjald á þá bíleigendur sem hafa ekki fært bíla sína í skoðun á réttum tíma. Hefði ekki verið glúrið að fresta þessu gjaldi í ljósi aðstæðna og taka það þá upp þegar betur árar? Þetta er það mikil hækkun (skattur) að flesta munar um það ekki síst þegar allir eru blankir eða á hausnum. Ætlar þúi að beita þér Hr. fjármálaráðherra fyrir þessu eða láta bara gossa?

Hvern fjandann voru menn að hugsa

Nú er það smán saman að koma í ljós að þessi ósköp voru mönnum ljós löngu fyrir hrunið í október en enginn gerði neitt  heldur sátu eins og bjánar og horfðu á þetta eins og í bíómynd og biðu eftir að þetta reddaðist. Þetta eru sömu menn og eru nú í framboði til alþingis. Hvað er hægt að segja um svona vinnubrögð: Klúður? Vanhæfi? Aumingjaskapur? Það er alveg makalaust að horfa upp á þetta nú og eiginn ber nokkra ábyrgð og engum er að kenna og allir láta sem ekkert hafi gerst.

Þetta er svo fáheyrt að mann skortir orð yfir aumingjaskapnum og vesaldómnum


mbl.is SÍ: Stefnt í ógöngur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað þolir þjóðarbúið mikið

Nú er það stóra spurningin :Þolir atvinnulífið þetta öllu lengur? Ég hef ansi sterkann grun um að nú byrji holskefla gjaldþrota og enn meiri atvinnuleysis því að menn geta þetta ekki lengur hvorki fyrirtæki eða einstaklingar og að bíða í næstu 3 mánuði eftir annari lækkun (sem er ekki í hendi) er algerlega vonlaust mál. Er þetta virkilega eina lausnin að hafa vextina svona hrikalega þannig að enginn ráði neitt við neitt?
mbl.is Stýrivextir lækkaðir í 17%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mesti töffari síðustu aldar

Það er alveg á hreinu að þetta afrek Guðlaugs gleymist aldrei þeim sem muna þennann tíma.

Það var skrítið að sjá þetta aftur í kastljósi í gær og upplifa það hversu mikið afrek þetta var hjá honum.


mbl.is Fjölmennt Guðlaugssund í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við ættum að bjóða kallinum í súra punga

Og hvalrengi og hann getur tekið hann Darling með því við eigum ýmislegt vantalað við þá félaga báða.

Þá kannski fáum við að vita eitthvað um ábyrgð og ýmislegt sem hann þarf að útskýra fyrir okkur betur, blessaður kallinn.


mbl.is Brown neitar að hann beri ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sæmundur Ágúst Óskarsson

Höfundur

Sæmundur Ágúst Óskarsson
Sæmundur Ágúst Óskarsson

Bloggvinir

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband