Færsluflokkur: Bloggar

AF HVERJU,AF HVERJU????????'

Nú er ansi langur tími liðinn frá hruninu eða allavega það langur tími að stjórnvöldum hefði verið í lófa lagið að koma afstöðu sinni á framfæri til umheimsins varðandi Icesave en sáralítið gerst. Af hverju það?

Nú er staðan sú að þessa kynningu vantar algerlega og það dynja á landanum allskonar ranghugmyndir og bjánagangur. Hefði ekki verið glúrið að kynna málstað landsins betur sama hvernig þessi blessuð kosning hefði farið?


mbl.is Holland hindri ESB-aðild og samvinnu við AGS
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

EN HVAÐ MEÐ ICESAVE??????????

Ég hélt að allt væri stopp útaf icesave???????

Eða er það misskilningur?


mbl.is Landsvirkjun fær lán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hver er þessi Marinó G Njálsson?

 

 

 

Jú. Þessi maður hefur staðið uppi í hárinu á bankakerfinu og sagt sína skoðun á yfirgangi þessara stofnana. Hann hefur ítrekað bent á það óréttlæti sem viðgengst í bankakerfinu og hve ríkisstjórnin hefur blygðunarlaust látið óátalið að einstaklingar séu settir í þrot og hann hefur marg oft bent á þá ótrúlegu eignaupptöku sem er að verða í þjóðfélaginu. Hann hefur bent á það óðagot sem var við stofnum nýju bankana og hvernig þeim var nánast færðar á silfurfati lánasöfnin  og eru svo að rukka þau í topp.

Er þessi maður óæskilegur? Er hans málflutningur fyrir einhverjum?

Er það tilviljun að þegar kemur fram aðili sem hefur þessar skoðanir að hann er nánast hrakinn í burtu. Af hverjum? Því miður er þetta ekki í fyrsta skipti sem þetta gerist og minnir satt best að segja á stalinstíman þegar óæskilegir aðilar voru settir til hliðar.

Ég held að Marino hafi gert mun meira fyrir almenning í þessu landi með málflutningi sínum en margir þingmenn og svo ekki sé talað um stjórnvöld sem virðast vera lömuð og duglaus


mbl.is Ekki greint frá skuldum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er of seint í rassinn gripið?

Nú er spurningin hvort að það sé of seint að gera eitthvað í málinu?

Var ekki nægur tími til að bregðast við löngu fyrr? líklega er það of seint nema þá með allskonar lögsóknum og skaðabótamálum.

Héldu menn að þetta mundi bara gufa upp eins og svo margt annað eins og t.d bankahrunið?

Þetta er því miður klúður sem er illleysanlegt


mbl.is Vill taka hlut Magma eignarnámi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dónaskapur ferðamanna á gossvæðinu

Það virðist vera að færast í vöxt að ferðamenn eru að koma í heimsókn á gossvæðin og aka heim á bæina án þess að gera vart við sig ,eingöngu til að forvitnast og skoða.Þetta er náttúrulega grófur ruddaskapur og engum sæmandi. Fólk er að koma heim á hlað á sumum bæum og taka myndir og aka svo í burtu.Ég skora á viðkomandi að láta af svona háttsemi og skammast sín
mbl.is Gosvirkni hefur minnkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr tónn í féttum stöðvar 2

Þegar ég hlustaði á fréttatíma stöðvar 2 í gærkvöldi þá gat að heyra alveg nýjann tón í fréttaflutningi stöðvarinar. Fréttin snérist um dauðsfall í Hafnafirði í fyrradag.Í fréttinni var lýsing sjónatvotts á vettvangi og jafnframt nákvæm lýsing á ástandi fórnarlanbsins.Það setti að mér hroll við þessar lýsingar og jafnframt vaknaði sú spurning hvort að þetta sé það sem koma skal í fréttaflutningi stöðvarinnar.Meigum við þá alveg eins eiga von á að fá nákvæmar lýsingar á t.d .slysstað þar sem hefur orðið alvarlegt bílslys  og þá nákvæmar lýsingar á ástandi fórnarlambanna. Ég veit ekki hverjum það þjónar að koma með svona fréttir, er þetta fyrir aðstandendur? Eða blóðþyrsta sjónvarpsáhorfendur?Stöð 2 þarf að gera það upp við sig hvaða stefna verður tekinn í svona viðkvæmum málum, því svona fréttaflutningur þjónar akkúrat eingum tilgangi nema þá að auka sársauka aðstandanda þessara manna.

 


Óþverrafréttir á stöð 2

Ég fylgdist með fréttum stöðvar 2 í kvöld og satt að segja varð ég alveg orðlaus yfir frétt þeirra af morðmáli í hafnarfirði  í gær. Ég  skil ekki hverjum eru ætlaðar svona fréttir og svona lágkúrulegur fréttaflutningur. Fréttamenn stöðvar 2 gerðu ælega í sig  hafa alveg misst þá trú og traust sem ég hef haft á þeim hingað til.Ég held satt að segja að ég hafi ekki heyrt annað eins í sjónvarpi hingað til og er þó af nógu að taka.Þessir fréttamenn ættu að setja sig í spor aðstandenda og gæta hófs heldur en að vera með svona að ég vil meina hreinan og klárann óþverraskap sem gerir ekkert annað nema að strá salti í ný sár aðstandenda þessara manna. Stöð 2 ætti að byðja aðstandur afsökunar á þessu í snatri þó að það eitt og sér sé of seint.


Er Icesave þá meðhöndlað sem fjársvikamál

Nú kemur væntanlega upp sú spurning hvort að Icesave málið sé ekki  dæmigert fjársvikamál og verði meðhöndlað sem slíkt. Eru þá sömu gildi uppi og ef um væri að ræða venjulegt bótamál og þá er verið að vísa í skaðabætur og endurgreiðslur. Er þá Íslenskur almenningur  þeir sem eiga að borga eða er það tjón sem að bæði Bretar og Íslendingar eiga að bæta saman. Eða hvað?

 


Meira af Eiríki Bergmann

Ég hef fylgst með skrifum margra um stöðu Íslands að undanförnu sem hafa svo verið birt  í t.d Breskum blöðum og ég held að meira ætti að gera í því að kynna okkar málstað eins og þar er gert. Þar fer fremstur að mínu mati Eiríkur Bergmann sem hefur skrifar kjarnmiklar   greinar í Bresk blöð og ég skora á hann að halda því áfram. Okkur veitir ekki af því að koma okkar sjónarmiðum á framfæri og þar virðist "penninn" vera okkar helsta vopn.
mbl.is Fjallað um reiði Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Sæmundur Ágúst Óskarsson

Höfundur

Sæmundur Ágúst Óskarsson
Sæmundur Ágúst Óskarsson

Bloggvinir

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband